Grínistinn Björn Bragi sló í gegn á dögunum með skets um veðrið á Íslandi. Sketsinn fór víða og samkvæmt síðustu fréttum er bandarískur grínisti búinn að stela honum með húð og hári.
En Björn er ekki af baki dottinn og birti nýjan skets í kvöld. Í honum kennir hann þér að læra undir próf á afar hreinskilinn hátt, svo ekki sé meira sagt.