Blac Chyna, unnusta Rob Kardashian, tók hinni svokölluðu Mannequin-áskorun þegar hún lá í sjúkrarúminu, tilbúin að fæða dóttur þeirra sem fengið hefur nafnið Dream Renée Kardashian.
Ákorunin felst í því að tekið er upp myndskeið af manneskju eða fólki sem er á fullu að gera eitthvað, nema að það er alveg kyrrt. Yfirleitt hljómar tónlist í bakgrunninum.
Chyna var ekki ein á myndskeiðinu heldur var móðir kærasta hennar, Kris Jenner, meðal annars með.
Talið er að áskorunin eigi upphaf sitt að rekja til nemenda í Edward H White-menntaskólanum í Jacksonville í Flórída.