Einn stærsti bardagaviðburður allra tíma fór fram í nótt þegar Conor McGregor mætti Floyd Mayweather í Las Vegas. Mayweather sigraði Conor nokkuð örugglega. McGregor hóf bardagann af miklum krafti en Mayweather sýndi hvað í honum býr þegar líða tók á og kláraði bardagann í 10. lotu, með tæknilegu rothöggi.
Conor var þó ekki lengi að jafna sig á tapinu og var mættur í partí aðeins nokkrum klukkustundum eftir tapið þar sem hann var hrókur alls fagnaðar.