Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, heldur áfram að fara yfir fréttir vikunnar í þættinum Vikan með Gísla Marteini á RÚV. Gísli stýrði reyndar ekki þættinum í gær en Bergsteinn Sigurðsson kom í hans stað.
Á meðal þess sem Atli Fannar lagði til í innslagi sínu var að Guðni Th. myndi ráða trommara, allavega ef hann ætlar að halda áfram að slá á létta strengi á blaðamannafundum.