Sumarið er komið í Mývatnssveit með tilheyrandi mýi. Jón Þór Kristjánsson fréttamaður RÚV og Björgvin Kolbeinsson tökumaður fengu að kynnast því í morgun.
Óvenju mikið mý er á Mývatni um þessar mundir en Jón Þór átti erfitt með að komast í gegnum heila setningu án þess að flugurnar skiptu sér af eins og má sjá á myndbandinu hér að neðan.
Jón Þór og Björgvin voru staddir á Mývatni til þess að taka upp frétt um mýið sem mun birtast í fréttatíma RÚV í kvöld.