Frétt Nútímans um matgæðinginn Gunnar Má Gunnarsson, sem rúllaði upp pizzu og borðaði hana eins og pylsu, vakti mikla athygli í vikunni. Í kjölfarið veltu fjölmargir fyrir sér hvort það sé yfir höfuð hægt að leika þetta eftir.
Sjá einnig: Gunnar rúllaði upp pizzu og borðaði eins og pylsu: „Þetta var búið áður en ég vissi af“
Skorað var á skrifstofumanninn Atla Fannar Bjarkason, ritstjóra Nútímans, að leika þetta eftir. Hann er vanur að taka áskorunum og óð því í verkefnið. Þetta er mikið af mat fyrir einn mann — sjáðu hvernig honum gekk í myndbandinu hér fyrir ofan.