John Oliver tók Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir í þættinum Last Week Tonight á HBO í gærkvöldi. Oliver reyndi að svara fjórum spurningum sem brenna á honum varðandi Trump:
- Hvernig tókst okkur að fá sjúklegan lygara í Hvíta húsið?
- Hvaðan koma lygarnar hans?
- Af hverju trúa honum svona margir?
- Hvað getum við gert í þessu?
Sjón er sögu ríkari. Oliver setti Trump í tætarann og við komst meðal annars að því að forseti Bandaríkjanna fær upplýsingarnar sínar á ansi vafasömum miðlum.