Viðtal sem kokkurinn og sjónvarpsmaðurinn Magnús Ingi Magnússon, best þekktur sem Maggi Texas, hefur vakið mikla athygli eftir að bent var á það á Twitter. Horfðu á brot úr viðtalinu hér fyrir ofan.
Maggi er með þáttinn Eldhús meistaranna á ÍNN og var með Einar Gauta, kokk á Bautanum á Akureyri ásamt eiganda staðarins í viðtali í þættinum. Eftir að segja Einar sé augljóslega ekki frá Bárðardal, eins og eigandinn, þá segist Einar Gauti vera ættleiddur frá Indlandi.
Maggi svarar að bragði að hann sé „svolítið Indverjalegur“ en Einar Gauti lætur ekki slá sig útaf laginu og tekur ansi spurningunum með stóískri ró.
Smelltu hér til að horfa á allan þáttinn.