Nýjasta æðið um þessar mundir er hin svokallaða Big Mac áskorun en hún felst í því að borða fjórar Big Mac máltíðir og fjóar mjólkurhristinga á innan við klukkutíma. Til þess að teljast hafa klárað áskorunina þarf að halda góssinu niðri án þess að kasta upp í hálftíma eftir að síðasti bitinn er tekinn.
Blaðamaðurinn Kieron hjá breska vefmiðlinum unilad.co.uk ákvað að reyna við áskorunina. Hann byrjar nokkuð vel og tekst að klára tvo Big Mac hamborgara á innan við fimm mínútum. Eftir það fer róðurinn að þyngjast.
„Myndi ég mæla með þessu? Alls ekki. Mjólkurhristingurinn klárar þig,“ segir Kieron.