Myndband náðist af því þegar tveir menn kveiktu í jólageitinni við IKEA í nótt. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Að sögn varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um íkveikjuna um fjögurleytið og brann geitin nánast til kaldra kola.
Í frétt mbl.is segir einnig að samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi sést til mannanna sem grunaðir er um að hafa kveikt í geitinni í nótt yfirvega vettvanginn í bíl.
Lögreglan stöðvaði bifreiðina skömmu síðar og handtók þrjá. Tveir þeirra eru vistaðir í fangageymslu fyrir rannsókn málsins.