Auglýsing

Myndband: Snákur fastur í klósetti hjá fjölskyldu í Ástralíu

Fjölskylda í Queensland í Ástralíu þurfti að kalla til sérfræðings til að losa snák sem sat fastur í klósetti á heimilinu. Tony Harrison, eða Gold Coast and Brisbane Snake Catcher eins og hann kallar sig mætti á staðinn til að fjarlægja slönguna. Hann tók upp myndband á meðan sem farið hefur hratt um netheima.

„Getið þið ímyndað ykkur að vakna snemma, setjast á klósettið og þetta kemur upp á milli lappana á ykkur,“ segir Tony í myndbandinu þegar hann nær loksins taki á slöngunni. 

Fjallað var um málið í Áströlskum fjölmiðlum en snákurinn var af gerðinni, Brown tree snake. Það tók Tony aðeins örfáar mínútur að fjarlægja hann.

Sjáðu myndbandið í spilaranum hér að ofan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing