Fótboltamaðurinn Mohammed Anas var valinn maður leiksins eftir jafntefli liðs hans Free State Stars við liðið Ajax Cape Town á föstudaginn. Í viðtali eftir leikinn tókst honum að mismæla sig heldur vandræðalega. Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.
Anas byrjaði á því að þakka aðdáendum sínum stuðninginn. „Og eiginkonu minni og kærustunni minni,“ sagði hann.
Hann áttaði sig fljótlega á mistökum sínum og sagðist aðeins hafa ætlað að þakka eiginkonunni. „Afsakið, eginkonu minni,“ sagði Anas og bætti við. „Ég elska þig svo mikið, frá mínum dýpstu hjartarótum.“
VIDEO: Mohammed Anas just gave the greatest MoTM speech of all time, thanking both wife and girlfriend. (Via @clydegoal) pic.twitter.com/gXJ4ZwOtdg
— Gary #JoySports (@garyalsmith) March 17, 2017