Umfjöllun Kastljóss um blekkingar Brúneggja hefur vakið gríðarlega athygli. Merkilegt er að skoða viðtal við Kristinn Gylfa Jónsson, einn eigenda Brúneggja, í Bændablaðinu frá því í september árið 2014 í ljósi þess sem kom fram í gær. Þar lýsti Kristinn miklu lúxuslífi hænanna.
Þjóðin fékk að sjá nákvæmlega hvernig Kristinn lýsti þessu lúxuslífi þegar Atli Fannar fór yfir fréttir vikunnar á Vikunni með Gísla Marteini á RÚV í kvöld. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.