Tindastóll vann öruggan sigur á Skallagrími í Domino’s-deild karla á Sauðárkróki í gærkvöldi. Tindastóll TV sýnir þá leiki Tindastóls sem eru ekki í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og mögnuð lýsing hins unga Eysteins Ívars frá því í gær hefur vakið mikla athygli. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan.
Eysteinn Ívar gefur Gumma Ben og Rikka G ekkert eftir í lýsingunum og á einnig til að grípa í frasa líkt og Svali Björgvinsson. Þegar Björgvin Hafþór Ríkharðsson hóf sig til flugs í leiknum í gær vissi Eysteinn varla hvert hann ætlaði og lýsti því sem fyrir augu bar á tilfinningaríkan hátt.