Orri Eliasen er tíu ára gamall og fer ferða sinna á einhjóli, meðal annar í skólann. Hann fékk hjólið í jólagjöf frá foreldrum sínum síðustu jól og hefur náð mikilli færni á því á skömmum tíma. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
Tinna Björk, útsendari Nútímans, hitti Orra og sá hann leika listir sínar. Hann hefur sett sér markmið sem hann vill ná fyrir lok þessa árs, að geta hjólað á einhjólinu og haldið þremur boltum á lofti á sama tíma.