Ástralskt par var hársbreidd frá því að ganga í það heilaga þegar náttúran kallaði á þriggja ára son þeirra. „Ég þarfa að kúka,“ hrópaði drengurinn og að sjálfsögðu sló myndbandið í gegn á internetinu.
Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.
„Við vorum að fara að strengja heitin þegar hann truflaði okkur. Talandi um fullkomna tímasetningu,“ sagði brúðurinn Hannah Lienert í samtali við Huffington Post.
Systir hennar var fljót að bregðast við og hljóp með drenginn á klósettið en fólkið í athöfninni skemmti sér að sjálfsögðu yfir atvikinu.
Hannah segir þessa litlu truflun hafa gert daginn minnistæðari en hún og eiginmaður hennar hafa verið saman í sex ár og eiga tvo stráka.