Leikkonan Sharon Stone var í spurði í þættinum Sunday Morning á CBS á dögunum hvort hún hafi verið áreitt kynferðislega. Sharon sprakk hreinlega úr hlátri. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Fjölmargar konur í Hollywood hafa stigið fram og sagt frá kynferðislegri áreitni, ofbeldi og mismunun í tengslum við metoo-byltinguna. Sharon Stone er búin að vera í bransanum í áratugi og fannst augljóslega fáránlegt að vera spurð hvort hún hafi upplifað eitthvað slíkt.
„Lee, ég er búin að vera í þessum bransa í 40 ár. Geturðu ímyndað þér bransann sem ég steig inn í fyrir 40 árum? Lítandi út eins og ég leit út? Frá einhverju krummaskuði í Pensilvaníu? Enginn verndaði mig — ég er búin að sjá þetta allt.“