Hin níu ára gamla Ásta Dóra Finnsdóttir sló í gegn á dögunum þar sem hún spilaði á almenningspíanó í Canary Wharf í Lundúnum. Vefur breska dagblaðsins Daily Mail hefur birt myndband af frammistöðunni sem má sjá hér fyrir neðan.
Ásta er kölluð „mini-Mozart“ í fréttinni en þar kemur fram að Ásta hafi verið í fríi með foreldrum sínum þegar hún settist við píanóið. Sjáðu magnaða frammistöðu Ástu hér fyrir neðan.
https://youtu.be/qPAvqBzoDWY