Hinseginnleikinn á Snapchat hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið. Þar fáum við að kynnast veruleika hinsegin fólks sem upplifir ennþá fordóma, fáfræði og kjánalegar spurningar, þrátt fyrir árið sé 2016 og að í fyrra hafi verið 2015.
Nútíminn fékk að heyra nokkrar skrýtnar spurningar sem hinsegin fólk fær. Horfðu á myndbandið hér fyrir ofan. Á meðal spurningar sem þau heyra reglulega eru „hvort ykkar er karlinn í sambandinu?“ og „Er ekki búið að fullnægja þér?“