Auglýsing

Strákarnir okkar fá stuðning úr óvæntri átt, Willem Dafoe sendir Íslandi kveðju

Spennan fyrir leik Íslands og Austurríkis á EM í fótbolta í Frakklandi er að ná hámarki. Leikurinn hefst klukkan 16 og Íslandi nægir jafntefli til að komast áfram í 16 liða úrslit, þó það verði að sjálfsögðu spilað upp á sigur.

Magdalena Björnsdóttir rakst á Hollywood-leikarann Willem Dafoe í dag og hann sendi að sjálfsögðu Íslendingum góða kveðju. „Gangi ykkur vel í kvöld,“ sagði hann.

Magdalena rakst á Dafoe í róm og segir í samtali við Nútímann að hann sé afar vinalegur náungi.

Sannarlega kveðja úr óvæntri átt.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing