Þau Daniella Hirst og Craig Smith komu sér í vandræði fyrr á þessu ári þegar þau ákváðu að stunda kynlíf á pizzastaðnum Domino’s í Scarborough á Englandi. Ástarlotur þeirra náðust á öryggismyndavélar á staðnum sem ákvað að kæra atvikið til lögreglu. Málið var tekið fyrir fimmtudaginn þar sem þau játuðu bæði brot sitt en þeim er gefið að sök að hafa stundað kynlíf á almannafæri.
Sönnunargagnið sem lagt var fram í málinu var 18 mínútna langt myndband þar sem parið sést stunda kynlíf á meðan starfsmenn Domino’s matreiða pizzuna sem þau pöntuðu.
Samkvæmt frétt Telegraph sat Daniella með hendur fyrir andlitinu á meðan sönnunargagnið var sýnt en Smith gat ekki mætt fyrir dóminn þar sem hann situr í fangelsi fyrir annað brot. Dómur í málinu verður kveðinn upp 17. október.
Í viðtali við The Sun er haft eftir Smith að þau hafi rætt um þá staði sem þau höfðu áður stundað kynlíf á og komist að því að fimm bestu staðirnir væru, strætó, bíll, hótel, sundlaug og almenningsgarður. „Við vildum athuga hvort við gætum toppað það,“ sagði Smith.