Rich Piana er ekki lengur tengdasonur Íslands. Nútíminn greindi frá því á dögunum að hann og vaxtaræktarkonan Sara Heimisdóttir hafi ákveðið að segja þetta gott en þau gengu í það heila í september á síðasta ári.
Rich og Sara bjuggu saman í risastóru húsi í Hollywood og hann hefur nú birt myndbönd þar sem hann sýnir aðdáendum sínum húsið. Nokkurs konar Innlit/útlit.
Rich skipti myndböndunum upp í fjóra hluta, enda stórt hús. Hér er fyrsti hluti.