Piers Morgan er óþolandi að margra mati enda eflaust þekktastur fyrir að rífa kjaft á internetinu undanfarin ár. Hann stýrir þættinum Good Morning Britain á sjónvarpsstöðinni ITV ásamt Susönnu Reid og Ben Shephard.
Vefurinn Joe.co.uk tók saman viðbrögð Susönnu þegar Piers Morgan talar í þættinum og það lítur út fyrir að hún deyi örlítið innra með sér í hvert einasta skipti.