Íslendingar eru enn að sleikja sárin eftir að Svala Björgvinsdóttir komst ekki áfram í Eurovision í gærkvöldi. Svala stóð sig frábærlega en Evrópa valdi önnur lög og við verðum að lifa með því.
Tístarinn Egill Jónsson birti á Twitter örstutta útgáfu af smellinum Paper og velti fyrir sér hvort lagið hefði komist lengra ef hljómsveitin Mogo Jacket hefði verið með í för. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Hefðum líklega unnið Eurovision ef Mogo Jacket hefði farið á svið með Svölu pic.twitter.com/fjUpifHg3l
— Egill Jónsson (@EgillJonsson) May 10, 2017
Mogo Jacket er að sjálfsögðu sköpunarverk Fóstbræðra og átti ódauðlega smellinn Dangerous Girl.
Hefðum líklega unnið Eurovision ef Mogo Jacket hefði farið á svið með Svölu pic.twitter.com/fjUpifHg3l
— Egill Jónsson (@EgillJonsson) May 10, 2017