Síðasta stiklan fyrir seríu tvö af sjónvarpsþáttunum Stranger Things er nú komin út en innan við vika er í að þættirnir verði frumsýndir í heild sinni á Netflix.
Fyrri þáttaröðin sló algjörlega í gegn en hún gerist á 9. áratugnum í bandarískum smábæ og fjallar um strákahóp og baráttu þeirra við yfirnáttúruleg öfl.