Rúmlega þúsund tíu ára strákar á Orkumótinu í Vestmannaeyjum horfðu saman á leik Íslands og Austurríkis í gær. Stórkostlegt myndband sem sýnir aðdraganda marks Arnórs Ingva Traustasonar í lok leiks og fögnuðinn þegar hann skoraði hefur verið birt á Youtube.
Horfðu á markið hér fyrir neðan. Drengirnir voru byrjaðir að hoppa áður en hann skoraði markið og gjörsamlega trylltust svo þegar boltinn fór í netið.
Skiljanlega.