Grínistinn og samfélagsrýnirinn Trevor Noah kom Íslandi að í brandara í þættinum Daily Show í gærkvöldi. Forsetaframbjóðandinn Donald Trump fékk einnig að vera með í gríninu. Sjáðu brot úr þættinum hér fyrir ofan.
Í þættinum sýndi Trevor hvernig Daily Show myndi líta út árið 2020, eftir fyrsta kjörtímabil Donalds Trump í embætti forseta. Hann sagði eitt af embættisverkum Trump hafa verið að varpa sprengju á Ísland vegna þess að hann hélt að ISIS væri frá Íslandi.