Gönguleiðin milli Landmannalauga og Þórsmerkur kallast Laugavegur.
Hún er um 54 km löng og er afar vinsæl meðal innlendra sem erlendra göngumanna. Gönguleiðin þykir afar fögur og býður upp á brot af flestu því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.
Svo er það Laugavegurinn í Reykjavík.
Fæstir rugla honum saman við hinn Laugaveginn en ferðamennirnir í myndbandinu hér fyrir neðan virðast hafa gert það. Eða það væri allavega fyndið ef það væri ástæðan fyrir því að þeir voru á röltinu, vel búnir og með göngustafi á vinsælustu verslunargötu landsins.
Horfðu á myndbandið, sem hefur slegið í gegn á Twitter, hér fyrir neðan
Andri Fannar Kjartansson deildi þessu skemmtilega augnabliki…
Þegar þú velur vitlausan Laugaveg til að labba????⛰#laugavegurinn pic.twitter.com/qgn0rYHyF9
— Andri Fannar (@andrifk97) December 6, 2016