Verzlunarskóli Íslands hætti í vikunni að kynjaskipta salernum. Málið hefur vakið mikla athygli og þá sérstaklega eftir að Vigdís Hauks, þingkona Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, skrifaði eftirfarandi færslu á Facebook:
„Aumingja stelpurnar að fara á útpissuð klósett.“
Í samtali við Vísi í gær sagðist hún vera svo undrandi á þessari umræðu að hún geti ekki orða bundist. „Mér finnst hreinlætinu fórnað í þessu máli. Það er hægt að ná jafnréttinu fram með mörgum öðrum hætti,“ sagði hún og bætti við að það væri mikilvægt að karlmenn verði skyldaðir til að pissa sitjandi, verði þetta að veruleika.
Grínistinn Vilhelm Neto var fljótur að bregðast við og birti þetta myndband á Vine, þar sem hann túlkar orð Vigdísar á sinn einstaka hátt
https://vine.co/v/5O0WqFHEK2F
Edda Marín Ólafsdóttir og Helena Björk Bjarkadóttir, formenn Femínstafélags Verzlunarskólans, sögðu í Morgunútvarpinu í gær að félagið hafi óskað eftir að aðskilnaður kynja á klósettum yrði afnuminn til að auðvelda þeim nemendum lífið sem eru ekki vissir hvað kyni þeir tilheyra.
„Við höfum ekki fengið neitt neikvætt þannig að okkur finnst þetta eiginlega bara æði hvað allir eru að taka vel í þetta,“ sögðu þær.
Á Twitter hefur málið mikið verið rætt. Sólmundur Hólm byrjaði að kanna hvernig karlar haga klósettferðum sínum almennt
Strákar! Hvort pissið þið oftar sitjandi eða standandi?
— Sóli Hólm (@SoliHolm) August 25, 2016
En það er kannski þetta hérna sem gleymist í umræðunni
Ég vinn meðal annars við að þrífa klósett og let me tell you, konur pissa líka á setuna.
— Margrét Arna (@margretviktors) August 26, 2016
Real talk: kvennaklósett eru almennt öll útmígin hvort eð er þökk sé skvísum sem pissa standandi því þær vilja ekki snerta setuna.
— Sunna Ben (@SunnaBen) August 26, 2016