Eins og við greindum frá í morgun ákvað mannanafnanefnd á fundi sínum þann 16. október að hafna millinafninu Dór. Leiklistarneminn og sprelligosinn Vilhelm Neto hefur sent frá sér myndband þar sem hann túlkar fundinn þar sem ákvörðunin var tekin.
Sjá einnig: Vilhelm Neto túlkar íslenskar bíómyndir fullkomlega í drepfyndnu myndbandi
Vilhelm birti myndbandið á Instagram nú rétt í þessu og það er að sjálfsögðu spreng hlægilegt. Sjón er sögu ríkari!