Auglýsing

Örskýring: 50 Cent er ekki blankur

Um hvað snýst málið?

Fjölmiðlar greindu frá því að rapparinn og viðskiptajöfurinn 50 hafi lýst sig gjaldþrota í kjölfarið á því að hafa samið um að greiða Lastoriu Leviston fimm milljónir dala í bætur fyrir birta kynlífsmyndband af henni á netinu.

Hún er barnsmóðir rapparans Rick Ross sem átti í deilum við 50 Cent.

Hvað er búið að gerast?

50 Cent hefur hagnast gríðarlega á undanförnum árum en í dómskjöldum kemur fram að eignir hans séu nú metnar á aðeins 10 til 50 milljónir dala. 1-7 milljarða íslenskra króna. Skuldir hans eru metnar á sömu upphæðir.

Talið er að rapparinn sé að ganga í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og að gjaldþrotið sé hluti af því.

Vefurinn Complex.com greinir frá því að með því að óska eftir gjaldþrotaskiptum geti hann frestað því að greiða skuldir sínar.

Það er því ljóst að hann er ekki blankur þó hann sé ekki eins auðugur og áður fyrr.

Hvað gerist næst?

Fjármál 50 Cent verða endurskipulögð en óvíst er hvernig hann kemur út úr því.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing