Um hvað snýst málið?
Óeirðir brutust út í bænum Panchkula í Haryana-héraði á Indlandi á föstudag þegar gúrúinn Gurmeet Ram Rahim Singh var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað tveimur konum, í söfnuði sem hann stjórnar, árið 2002.
Singh, sem er fimmtugur að aldri og hefur verið leiðtogi Dera Sacha Sauda-safnaðarins í 27 ár, á sér milljónir áhangenda um allan heim. Hann hefur verið kallaður, „Rockstar Baba“ og „Guru of Bling.“
Hvað er búið að gerast?
The Guardian hefur eftir heimildarmanni á svæðinu að yfir 250 hafi slasast og minnst 30 hafa láti lífið í óeirðunum. Talið er að á milli 100 til 200 þúsund stuðningsmenn hafi safnast saman fyrir utan dómshúsið og um leið og Singh var fundinn sekur varð allt vitlaust. Kveikt var í byggingum og bílum og mikil átök urðu milli lögreglumanna og stuðningsmanna Singh. Átök brutust einnig út í Dehli, höfuðborg Indlands, þar sem kveikt var í lestarvögnum.
Lögreglan beitti táragasi til að yfirbuga hópinn og samkvæmt frétt BBC voru yfir 2500 stuðningsmenn Singh handteknir.
Hvað gerist næst?
Eftir úrskurðinn var Singh færður í fangelsi þar sem hann mun dvelja þangað til refsing verður ákveðin en reiknað er með að það verði gert á mánudaginn. Talið er að hans bíði að minnsta kosti 7 ára fangelsisvist.
Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.