Auglýsing

Örskýring: Misskilningur um boð Sigmundar Davíðs til Parísar

Um hvað snýst málið?

Fjölmiðlar birtu í gær fréttir um að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafi afþakkað boð Frakklandsforseta um að vera viðstaddur sam­stöðugöngu í Par­ís, þar sem millj­ón manna minntust fórn­ar­lamba voðaverk­anna í síðustu viku.

Misskilningurinn virðist hafa orðið til í kjölfar fréttar mbl.is sem hefur nú verið leiðrétt.

Hvað er búið að gerast?

Í fyrstu frétt mbl.is um málið kom fram að Frakklandsforseti hafi boðið Sigmundi að vera viðstaddur athöfnina. Frétt­inni var síðan breytt til að end­ur­spegla að ekki var um að ræða per­sónu­legt boð for­seta Frakk­lands til for­sæt­is­ráðherra, heldur al­mennt boð.

Sigmundur Davíð birti í gærkvöldi færslu á Facebook þar sem hann leiðrétti fréttaflutning um að hann hafi afþakkað boð Frakklandsforseta:

Það barst raunar ekkert boð frá Frakklandsforseta. Í fyrrakvöld fékk ég hins vegar í hendur bréf frá franska sendiráðinu þar sem þakkað var fyrir stuðning við Frakka og bent á að erlendum gestum sem þess óskuðu byðist að taka þátt í göngunni. Það boð Frakka var heldur ekki afþakkað, þvert á móti var strax farið í að tryggja að fulltrúi mætti fyrir hönd Íslands.

Hver fór fyrir Íslands hönd?

Í tilkynningu á vef forsætisráðuneytisins kemur fram að Nína Björk Jónsdóttir, staðgengill sendiherra Íslands í Frakklandi, hafi verið fulltrúi Íslands í göngunni.

Örskýringar eru 200 orða fréttaskýringar Nútímans um mál sem mikið er fjallað um. Sendu okkur póst ef þú ert með hugmynd að örskýringu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing