Auglýsing

Ég vinn við að skeina gömlu fólki

„Við hvað starfar þú?“
„Ég vinn á Hrafnistu.“
„Já ok, við að skeina gömlu fólki.“

Þessa spurningu og þetta svar fékk ég ekki alls fyrir löngu. Það ætti að vera öllum hollt að prófa, þó ekki væri nema í viku, að starfa við umönnun aldraða. Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir þessu starfi.

Hversu skemmtilegt, gefandi, erfitt, grátlegt og broslegt það er. Við erum að tala um það að ef ég tek dæmi þar sem þrjátíu einstaklingar eru á deild. Enginn er eins. Allir með sína sögu, sínar venjur, sín áhugamál og sinn persónuleika.

Mismunandi sjúkdómar, fötlun, heilabilun og þess háttar. Allir eiga það þó sameiginlegt að þurfa að nærast, pissa, kúka, hlæja, gráta, tala, þegja, sofa, vaka; þessar grunnþarfir sem ALLIR hafa.

Við sem störfum á hjúkrunarheimilum sjáum til þess eftir okkar bestu getu að öllum líði vel, að engum skorti neitt. Margir eiga góðar fjölskyldur en það eru líka margir sem eru ekki í góðu sambandi við sína nánustu eða eru jafnvel einstæðingar. Það eru dæmi um það að starfsmenn hafi farið og keypt nauðsynjar fyrir einstaklinga og borgað upp úr sínum vasa.

Ekki það að launin séu svona há, þvert á móti, heldur vegna þess að okkur er annt um einstaklingana og viljum vel. Við þekktum ekki einstaklinginn eins og hann var, en við þekkjum hann eins og hann er. Lífið endar hjá okkur öllum. Það er í okkar höndum að láta einstaklingnum líða sem allra best á síðustu metrunum.

Enginn dagur er eins í okkar starfi. Hlutirnir breytast fljótt. Við dílum við allskonar fólk og allskonar ættingja. Við vinnum flest í vaktavinnu; morgunvaktir, kvöldvaktir, næturvaktir og að sjálfsögðu helgarvaktir. Það er gríðarlegt álag oft á tíðum, bæði líkamlegt og andlegt. Það kemur oft fyrir að maður er gjörsamlega andlaus eftir vaktina…oftar en ekki. Ef ég ætti að þylja upp allt sem við gerum eða þurfum að þola að þá er það efni í doðrant. Því við erum að hugsa um einstaklinginn og hvað er honum fyrir bestu en flestum fylgir lífsins saga, fjölskylda og hellingur af allskonar sem við þurfum líka að hugsa um.

Starfsmenn hafa gengið út eftir fyrstu vaktina og láta svo ekki sjá sig meir því þetta starf er alls ekki fyrir alla. En starfsmenn hafa líka byrjað og elskað þetta starf, svona eins og ég.

Mig langar að taka smá dæmi. Já, ég veit, ég veð úr einu í annað en verð að koma þessu að þar sem þetta er staðreynd lífsins.

Hjá okkur er Jón sem er 92 ára. Hann kom til okkar í febrúar eftir að hafa verið fluttur á milli sex staða frá áramótum, svona eins og þetta er í dag. Hann er illa áttaður eftir alla flutningana. Hann þarf alla aðstoð. Jón er lögfræðingur sem rak sitt eigið fyrirtæki, átti sitt einbýlishús og sinn bíl. Hann ferðaðist mikið enda skuldaði engum neitt og hafði mikið á milli handanna.

Hjá okkur er Sigríður sem er 92 ára eins og Jón. Sigríður kom til okkar einnig í febrúar. Heppin Sigríður, hún var einungis búin að vera á þremur stöðum frá áramótum. Sigríður er með heilabilun og þarf alla aðstoð eins og Jón. Sigríður vann við umönnun í 30 ár eða þangað til hún varð fimmtug en þá varð hún öryrki vegna bakmeiðsla og slitgigtar. Sigríður leigði íbúð alla tíð og varð að spara hverja krónu því ekki eru há launin við umönnun svo ég tali nú ekki um að vera öryrki.

Jón er mjög efnaður, vel lærður og töluvert snobbaður.
Sigríður fátæk og hefur þurft að berjast fyrir lífinu.
En þau enda á sama stað….

Verum góð við náungann. Við vitum aldrei sögu einstaklingsins, hvað hann hefur gengið í gegnum og það sem meira er, við erum ekkert betri!

Elísabet heiti ég og starfa sem sjúkraliði á Hrafnistu
– ég vinn við að skeina gömlu fólki.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing