Auglýsing

Tíu ráð fyrir útflytjendur (fólk sem er í þann mund/dreymir um að flytja erlendis)

Ég veit hvað þú ert að hugsa; af hverju er þetta fyrst að koma á netið núna?

Ég hugsaði nákvæmlega það sama. Ég, eins og þú, er mjög snortin yfir þeim áhrifum sem svona listar hafa á líf mitt. 
Ég man nákvæmlega hvar ég var þegar ég las fyrst: „8 atriði sem hann vildi að þú vissir um kynlíf“ — en það er yfirleitt þannig þegar að maður fær svona svakalegar fréttir. 
Ég lá upp í rúmi og vissi þá og þegar að líf mitt yrði ekki samt aftur. Ráð líkt og: „Segðu oftar við mig“ og: „Ég er ekki bara typpi“ eru eitthvað sem að ég hefði aldrei vitað að kærastinn minn vildi að ég vissi. Ef þetta bara hefði komið fyrr á netið.

Ég tala nú ekki um aðra lista líkt og: „16 ástæður til að stunda kynlíf daglega“ og „9 atriði við útlit kvenna sem að pirra karlmenn“ (því 10 hefði verið of mikið). Þar er talað um skorpnar varir, lélega umhirðu tanna og þurra húð, sem eru jú allt saman atriði sem að ég sækist eftir hjá karlmönnum. En þökk sé listanum þá veit ég nú að þetta er ekki það sem þeir sækjast eftir í fari mínu.

Ég veit hvað þið eruð að hugsa enn og aftur; af hverju kom þetta ekki fyrr á netið? Viðvörunin hefði alveg mátt koma nokkrum húðflyksum og gulum tönnum fyrr. En nú er ég komin með kærasta, þökk sé listunum.
 Þess vegna langaði mig til þess að endurgjalda greiðann og skrifa upp fyrir ykkur 10 ráð fyrir útflytjendur, þ.e. fólk sem er í þann mund/bara að pæla í/dreymir um að flytja erlendis.

1. Facebook status

Það fyrsta og allra mikilvægasta er að gera Facebook status. Þú verður að láta alla vini, ættingja og fólk sem þú veist ekkert af hverju þú ert með á vinalistanum vita að þú sért búin að ákveða að flytja til útlanda. Það skemmir ekki fyrir að vera búin að kaupa farmiða og láta mynd af honum fylgja. Allt annað er auka atriði … Í bili.

2. Undirbúningurinn

Næsta skref er að undirbúa það sem þú getur. Núna ert þú búin að láta alla sem skipta máli vita að þú ert að fara út og því heldur vandræðalegt að tilkynna þeim að þú hafir hætt við. Ef þú ert búin að kaupa flugmiðann þá þarftu bara að finna þér skóla eða vinnu, húsnæði og vini. Þú ert ekki búin að vera nema a.m.k. 18 ár að gera og græja þetta allt saman á Íslandi en að öllum líkindum reddast þetta á næstu dögum.

3. Leitin að húsaskjóli

Að finna sér íbúð í gegnum netið er yfirleitt mjög öruggur kostur. Það er vinalegt fólk í flestum löndum sem er með hina fullkomnu íbúð fyrir þig. Hún er ekki of dýr og örugglega nýuppgerð. Þau vilja hinsvegar yfirleitt fá fyrirframgreiðslu frá þér og ég mundi ráðleggja þér að senda hana beint í gegnum moneygram. Þá sendir þú einfaldlega pening í pósti og vonar það besta. Ef það virkar ekki þá er líka alltaf sterkur valkostur að fara út og leita að íbúð þar, geta fengið að skoða og vera viss um að allt sé með felldu.

4. Vinaleit

Ég sá alltaf fyrir mér að ég væri sjötti meðlimurinn í franska Friends-genginu. Þau ættu bara eftir að finna mig. Þannig hélt ég að eftir fyrstu vikuna úti væri ég að sötra kaffi með nýju bestu vinum mínum á La centralé perké. En svo kom í ljós að það var enginn að leita að mér og ég þarf virkilega að leggja mig fram við að kynnast fólki í hinu hversdagslega lífi. 
Maður getur ekki einu sinni losað smá um kvíðann og verið í glasi, vegna þess að þú hefur engan til þess að fá þér í glas með til þess að kynnast vinum. Þetta er svona leiðinleg keðjuverkjun en þetta tekst á endanum. Vonandi.

5. Ég á alltof mikinn pening (sagði enginn á tuttugu og eitthvað. Aldrei)

Það skiptir ekki máli hvað þú safnar miklu, það verður aldrei nóg. Sættu þig bara við það strax og sparaðu þér símreikninginn við að hringja í Arion banka og hækka yfirdráttinn.

6. Hinn langþráði frítími

Draumur allra, alls staðar. Til hamingju, þú ert búin að finna hann. Þú hefur loksins nægan tíma til að læra. En þú hefur líka loksins tíma til þess að ná öðrum markmiðum eins og t.d. að klára heila þáttaseríu á einum sólarhring. Fyrir sumum, eins og undirritaðri, er þetta nýfundna frelsisvald stundum of mikið og misnotað hrottalega. Af hverju eru til 12. seríur af Greys Anatomy?

7. Heimsóknartími er milli …

Þú byrjar strax að hlakka til að kynnast nýrri menningu og hlakkar enn þá meira til þess að íslensku vinir þínir komi að heimsækja þig. Hafðu þig hægan í tilhlökkuninni. Lestu allar túristabækur sem að þú finnur og aflaðu þér upplýsinga á borð við hversu hár Eiffel-turninn er. Því þegar þú flytur út ertu í leiðinni að taka að þér fararstjórastarfsemi því að þessir svokölluðu vinir þínir eru yfirleitt spenntari fyrir því að sjá Rauða hverfið heldur en þig. Sættu þig við það, svona er lífið.

8. Þriggja rétta dósatíð

Jiii hvað þú hlýtur að vera orðin þreytt/ur á að borða góðan íslenskan mat. Að kynnast annarri matarmenningu er rosalega spennandi. Ef þú átt pening. Sem þú átt ekki. Velkomin í súpermarkaði í Evrópu. Þeir eru lokaðir á sunnudögum, opnir til 21 á kvöldin (hvar er 10/11? hvergi) og það er yfirleitt meira freistandi að kaupa sér vínflösku heldur en mat. Annars er dósamaturinn alltaf frábær fyrir fátæka námsmenn og nóg er úrvalið hérna erlendis. Gætir allt eins keypt þér kattarsand í leiðinni og sparað þér peninginn fyrir klósettrúllunum.

9. „ÞAÐ ER ALLT SVO GEÐVEIKT HJÁ MÉR“

Ekki gleyma að uppfæra Snapchat reglulega og auðvitað Instagram til þess að láta fólk vita hversu frábært það er að vera þú. Þú getur alltaf montað þig af veðrinu og af því að bjórinn kostar ekki 1.100 kall. Notfærðu þér það.

10. Ég fæ ekki heimþrá

Taugaveiklaður grátur og sársaukafullt scroll niður newsfeedið þitt þegar þú saknar Íslands sem mest er einn af þessum erfiðu dögum sem að þú hefur heyrt talað um. 
En umfram allt skaltu muna að þetta er í alvörunni frábær reynsla og að þú kemur sterkari út sem einstaklingur fyrir vikið. Þú munt ekki sjá eftir þessu. 
Passaðu bara að þú haldir því samt enn þá fram á öllum samfélagsmiðlum að þú sért ekki með heimþrá.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing