Fréttir
Síðastliðinn 13. desember gaf bandaríski rapparinn A$AP Rocky út myndband við lagið Tony Tone (sjá hér að ofan). Myndbandinu leikstýrði Hidji Films.
Lagið er að finna á plötunni TESTING sem kom út fyrr á árinu. Platan er aðgengileg á Spotify.
Nokkur samhljómur virðist ríkja á meðal þeirra sem tjá skoðun sína á myndbandinu í athugasemdakerfi Youtube þess efnis að A$AP Rocky sé skrefi framar en flestir rapparar þegar það kemur að gerð tónlistarmyndbanda; tæpur mánuður er liðinn frá útgáfu myndbandsins við lagið Sundress sem þykir einstaklega vel heppnað (sjá hér að neðan).