Íslenskt
Það er af nógu að taka í íslensku rappi um þessar mundir; ekki nóg með það að Alexander Jarl, CYBER og Countess Malaise hafi gefið út ný myndbönd fyrir helgi – þá var rapparinn Herra Hnetusmjör einnig að gefa út nýtt myndband rétt í þessu (sjá hér fyrir ofan).
Lagið, sem er pródúserað af Joe Frazier, ber titilinn Spurðu Um Mig og var leikstjórn myndbandsins í höndum Hlyns Hólms. Myndbandið skartar Aroni Can, Birni, Flona o.fl.
Lagið er einnig aðgengilegt á Spotify.
Síðast gaf Herrann út myndband við lagið Kling Kling.