13. apríl síðastliðinn sendi tónlistarmaðurinn Dadykewl frá sér tillkynningu á Facebook þess efnis að næstkomandi 10. maí myndi hann gefa út lagið Stundum í samstarfi við HRNNR—og binda þar með enda á hálfgert útgáfufrí (síðast gaf Dadykewl út plötuna Klámstjarna í fyrrasumar).
Nánar: https://www.facebook.com/dadykewl
Í dag (10. maí) efndi Dadykewl heit sitt; lagið—sem og myndband við lagið—rataði inn á Youtube í nótt (sjá hér að ofan). Takt lagsins smíðaði Dadykewl sjálfur og var mastering í höndum Starra. HRNNR sá fyrir trommunum.
Þess má geta að Dadykewl (Daði Freyr Ragnarsson) og HRNNR (Hrannar Valur Ragnarsson) eru bræður. Áður hafa þeir gefið út lög saman á borð við Ég held það bara og Lada.