Síðastliðinn fimmtudag (28. september) frumsýndi tvíeykið CYBER myndband við lagið Psycho á Prikinu en myndbandið rataði inn á Youtube degi seinna (sjá hér fyrir ofan).
Lagið pródúseraði Young Nazareth og skartar jafnframt rapparanum Countess Malaise. Jóhanna Rakel (CYBER) leikstýrði myndbandinu og var það tekið upp á skyndibitakeðjunni Aktu Taktu.
Psycho verður að finna á plötunni HORROR sem CYBER hyggst gefa út næstkomandi 13. október.