Fréttir
Í dag (8. ágúst) gaf íslenski rapparinn GKR út myndband við lagið ENN AÐ LÆRA (sjá hér að ofan). Myndbandið—sem GKR leikstýrði sjálfur—var tekið upp á Hólum en eins og fram kemur í tilkynningu sem fylgdi útgáfu myndbandsins á Facebook ku það vera „fallegasta sveit í heimi,“ að mati rapparans.
Lagið samdi GKR í samstarfi við hinn sænska Ian Persson (einnig þekktur sem Ian Boom).
Síðast gaf GKR út myndband við lagið SKROLLA.