Síðastliðinn desember fór þriðji þáttur Kronik á X-inu 977 í loftið.
Nýverið fundust upptökur úr þættinum, sem tökumaður hélt að hann væri búinn að glata, en í upptökunum getur að líta hressan Erp Eyvindarson leika á als oddi í hljóðverinu ásamt fríðu föruneyti (sjá hér fyrir ofan).
Óhætt er að segja að eldri kynslóð íslensks Hip-Hops hafi fengið að njóta sín; eins og Erpur orðaði það sjálfur:
„Nú geta þessir krakkar fokkað sér. Nú eru fokking karlarnir ‘up in this bitch!’“
– BlazRoca
Nýtti Erpur jafnframt tækifærið og skaut léttum skotum á starfsbróður sinn GKR.
Útvarpsþátturinn Kronik er í loftinu öll laugardagskvöld á milli 17:00-19:00.