Öll miðvikudagskvöld kl. 21:00 standa þau Þórunn Antonía Magnúsdóttir og DJ Dóra Júlía fyrir svokölluðum partí-karíókí kvöldum á Sæta svíninu (Sæta svínið er til húsa á Hafnarstræti 1-3, 101 Reykjavík). Allir þeir sem taka þátt fá vinning.
Í gær (fimmtudaginn 8. febrúar) var fyrsta partí karíókí kvöld ársins haldið.
Undir lok kvöldsins lét Erpur Eyvindarson (einnig þekktur sem BlazRoca)
sjá sig og steig á svið ásamt nokkrum góðum gestum. Flutti hann lagið
Jump Around eftir hljómsveitina House of Pain.
SKE var á svæðinu og tók ofangreint myndband sem fangar stemningu kvöldsins einkar vel.
(Þess skal getið að mikill hávaði var í hátölurum Sæta svínsins og að sökum þess tók hljóðmaður þá ákvörðum að blanda flutning þátttakenda saman við þau lög sem sungin voru.)