Öll sitjum við heima í dag og megum ekki fara eitt né neitt. Þá er auðvitað mikilvægt að hafa eitthvað að gera. Við á Ske mælum ekki með að sitja við ritvél á einangruðu hóteli út í sveit ef fjölskyldan er innilokuð með manni en mælum hinsvegar með að hlusta á fullt af íslenskri tónlist. Nóg er nú til af henni. Og það gæti farið að bætast í: Emmsjé Gauti virðist ætla að henda út plötu nú á dögum vírusins ógurlega.
Er þetta fullkominn tími til að gefa út tónlist? Er þetta hræðilegur tími til að gefa út tónlist. Eru fleiri að hlusta? Er fólk að fara tengja lögin við vírusinn?
— Emmsjé (@emmsjegauti) March 16, 2020
Lesendur Ske eru hvattir til að logga sig inn á Twitter og skella einu feitu jái á þessa spurningu.