Fréttir
Í dag (19. júní) birti Youtube-rás fréttastöðvarinnar CNN ofangreint myndband þar sem fjallað er um Strákanna okkar, sumsé karlalandslið Íslands í fótbolta, á HM.
Í myndbandinu rýna fjölmargir Íslendingar í land og þjóð, þar á meðal grínistinn og leikarinn Hjálmar Örn Jóhannsson. Aðspurður út í áhuga infæddra á knattspyrnu lét hann eftifarandi ummæli falla:
„Fótboltinn hefur alltaf verið móðir allra íþrótta á Íslandi. Okkar kynslóð spilaði fótbolta á hverjum degi, utanhúss, í kuldanum, um vetur—á frosinni mölinni.“
– Hjálmar Örn Jóhannsson
Ásamt því að ræða við Hjálmar Örn er einnig tekið viðtal við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson; þjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta, Heimi Hallgrímsson; og landsliðsfyrirliðann sjálfan, Aron Einar Gunnarsson.