Önnur plata bandaríska söngvarans Frank Ocean kom loks út um helgina. Platan ber titilinn Blonde (áður þekkt sem Boys Don’t Cry) og er þetta eina platan sem Ocean hefur sent frá sér í kjölfar plötunnar Channel Orange sem kom út árið 2012.
Frank Ocean fylgdi eftir útgáfu plötunnar með myndbandi við lagið Nikes (sjá hér fyrir ofan).
Tímaritið Rolling Stone lýsir myndbandinu sem „undraverðu.“