Auglýsing

​Tape

Þessi upptökugræja frá Reloop passar vel í vasa og hentar frábærlega fyrir þá sem til dæmis vilja kíkja í heimsókn til vinar og taka upp mix án þess að nota hljóðkort og stór upptökuforrit. Græjan er með USB-tengi sem hægt er að taka mixið beint í gegnum. Þeir sem nota Traktor eða Serato dj-forritin geta auðvitað tekið mixin beint upp í gegnum forritin en fyrir þá sem eru að nota svalari mátann, vínyl, er þetta gríðarlega einföld og góð leið. Hægt er að taka upp eitt og eitt lag af vínyl á þennan einfalda hátt í góðum gæðum. Tape tengist beint í mixerinn eða plötuspilarann með RCA-tengi. Helsti sjáanlegi ókosturinn við þessa upptökugræju er að upptökusniðið er ekki mögulegt á WAV eða FLAC sniði, heldur eru gæðin í annað hvort 320 kbps eða 192 kbps (kílóbæt á sekúndu). En á móti kemur að rökin fyrir lægri gæðum skýrast með því hversu smá og meðfærileg græjan er og er hún hugsuð sem vandræðalaus kostur á móti hljóðkortum og stórum upptökuforritum. Úr verður eitt skjal á USB-lyklinum eða tölvunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing