Auglýsing

Á níræðisaldri og í hörkuformi

Eitt sinn sagði landsþekktur lögmaður að aldurinn væri afstæður. Ernestine Shepherd er sennilega sammála þessum ummælum, en hún er á níræðisaldri og í hörkuformi.

Ernestine Shepherd fæddist 16. júní 1936 í Baltimore. Hún byrjaði ekki að æfa fyrr en hún var 56 ára gömul. Síðan þá hefur hún sigrað í tveimur vaxtarræktarkeppnum og árið 2010 var hún titluð elsta vaxtarræktarkona heims í heimsmetabók Guinness.

Sjálf segir hún að lykillinn að góðri heilsu sé sjálfsagi, einbeitning og gamla góða vinnusemin. Hún vaknar klukkan þrjú á hverjum morgni og hleypur um 130 kílómetra í hverri viku. Hún borðar aðallega egg, kjúkling og grænmeti og drekkur þar að auki mikið vatn.

Það er mikilvægt að gefast aldrei upp, segir hún.

Ernestine Shepherd er elsta vaxtarræktarkona heims

Hún fæddist árið 1936 en byrjaði ekki að æfa fyrr en hún varð 56 ára gömul

Hún hefur unnið tvo titla í sínum flokki

Hún er í heimsmetabók Guinness

Hún vaknar klukkan 3 á hverjum morgni og hleypur um 130 km í hverri viku

Hún byrjar að æfa klukkan 8 á morgnana og þjálfarinn hennar vann eitt sinn Mr. Universe keppnina

Hún borðar aðallega egg, kjúkling og grænmeti og drekkur þar að auki mörg glös af vatni á hverjum degi

En af hverju er hún í svona góðu líkamlegu formi?

Lykillinn er að gefast aldrei upp, segir hún

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing