Pastor Anderson var gestur þáttarins Harmageddon á X-inu í gær. Á meðan viðtalinu stóð tók presturinn upp myndband af sjálfum sér sem rataði rakleiðis inn á Youtube. Þar má finna athugasemdir eftir marga dygga aðdáendur prestsins þar sem skotið er föstum skotum á Frosta og Mána, stjórnendur þáttarins, ásamt íslensku þjóðinni eins og hún leggur sig.
Pastor Anderson lætur sjálfur nokkur stór orð falla og hann kallar t.d. 67% íslenskra kvenna hórur:
„Í stað þess að skamma sín, stæra Íslendingar sig af lauslætinu: að kvenmenn hagi sér eins og algjörar hórur.“
Hér eru nokkrar athugasemdir frá aðdáendum Anderson:
I thought that it was funny that his name was Frosti and he lives in Iceland.
(Mjög gott að maður að nafni Frosti búi á Íslandi.)– sanderson1611
Those Godless sissies, clearly, have never conversed with a real man. Good job Pastor.
(Þessar guðlausu raggeitur hafa sjáanlega aldrei talað við alvöru mann. Vel gert, séra.)– Brian Jones
Filthy Faggots. Wish I had two more arms and I’d give you 4 thumbs up brother.
(Skítugir kynvillingar. Myndi óska að mér yxu tvær hendur í viðbót svo að ég gæti sett 4 þumla í loftið þér til heiðurs, bróðir. )– Eli Opper
Those guys sounded like sadomites (sic).
(Þessir gaurar hljóma eins og þeir búi í Sódóma.)– Ben G
That Iceland radio host sounded like he was retarded. Lol
(Íslenski þáttastjórnandinn hljómaði eins og hann væri þroskaheftur. Lol)– Shawn Barnish
What evil degenerate boys.
(Vondir, úrkynjaðir strákar.)– Official Warrior
When atheists are backed into a corner and start making unfounded personal attacks you know they’re panicking and losing the argument.
(Þegar trúleysingjar mála sig út í horn og vaða í tilefnislausar, persónulegar árasir, þá veistu að þeir eru felmtri slegnir og að tapa rökræðunum.)– Christian Rhod