Kaninn er ekki alltaf með puttann á púlsinum þegar það kemur að fótbólta. Síðastliðið mánudagskvöld lét fréttamaðurinn Matt Barrie, hjá íþróttafréttastöðinni ESPN, eftirfarandi orð falla þegar fagnaðarlætin í Leicester brutust út eftir jafntefli Tottenham og Chelsea.
… og talandi um hið ólíklega, þetta voru viðbrögðin þegar Tottenham vann ensku úrvalsdeildina!
– Matt Barrie
Matt Barrie lét þetta víst ekki duga og hélt áfram að tala um Tottenham stuttu seinna. Myndband af ummælunum má sjá hér fyrir neðan, en þau veita kannski Tottenham aðdáendum ákveðna huggun.
Þátturinn Sports Center á ESPN er vinsælasta íþróttaþátturinn í Bandaríkjunum.
https://www.youtube.com/watch?v=Fwnnx3mMtLk