16. þáttur útvarpsþáttarins Kronik fór í loftið síðastliðið laugardagskvöld (25. mars). Þátturinn var útvarpaður beint frá Smash í Kringlunni. Gestir þáttarins voru rappararnir Herra Hnetusmjör og Birnir en saman tóku þeir skemmtilegt „freestyle“ í beinni (sjá hér fyrir ofan).
Seinni hluti „freestyle-sins“ mun rata á Ske.is í byrjun næstu viku.
Næsti þáttur Kronik fer í loftið annað kvöld á X-inu 977 á milli 17:00 og 19:00. Gestir þáttarins verða Alexander Jarl og Framapotararnir Steiney og Sara.